Terms of service

Lénabankinn er markaðstorg fyrir sölu á lénaheitum sem eru annaðhvort í eigu Lénabankans sjálfs eða seld fyrir hönd þriðja aðila.

Við kaup á léni fer flutningur þess fram yfir á ISNIC-aðgang kaupanda samkvæmt gildandi reglum. Kaupandi ber ábyrgð á að hafa virkan aðgang að sínum ISNIC-aðgangi svo hægt sé að ljúka flutningi á öruggan hátt.

Ef um sölu á léni í eigu þriðja aðila er að ræða fer lénið fyrst yfir til kaupanda. Þegar kaupandi hefur staðfest að tæknilegur flutningur hafi gengið rétt fyrir sig og eignarhald verið tryggt, er greiðsla framkvæmd til seljanda.

Lénabankinn innheimtir 20% söluþóknun af öllum seldum lénum nema annað sé sérstaklega samið um.

Þessi ferill er hannaður til að tryggja öryggi, gagnsæi og traust fyrir bæði kaupendur og seljendur, ásamt því að lágmarka áhættu í viðskiptum með lén.